Komin heim
Hæ elskur, þá er ég komin heim eftir ferðina í höfuðborgina. Ég naut samvista við 2 orma um helgina og er þess vegna full af orku. Það er svo yndislegt að vera með þessar elskur. Mikið ofsalega hlakka ég til að vera nær þeim, og geta heimsótt þau og þau heimsótt mig. Vona að þetta hafi verið jafngóð helgi hjá ykkur og þið hafið skemmt ykkur vel í Hveró.Ég segi eins og pabbi það er svo gott að þið haldið hópinn svona vel, ég held að það eigi eftir að koma ykkur til góða seinna í lífinu, þegar eitthvað bjátar á, sem ég reikna með að eigi eftir að gera hjá okkur eins og öðrum.Hafið það sem best elskur, Dísamamma
<< Heim