Meira um meintan hitting
Eftirfarandi staðreyndir eru ljósar:
Ég kemst til að hitta skemmtilegt fólk helgina 23.-25. mars.
Kristín er svo ótrúlega heppin að geta hitt mig sömu helgi.
Árni Viggó og Nína hafa hlotið þá gæfu að geta jafnvel notið nærveru okkar frænkna.
Hjörtur hlýtur að hafa selt sál sína djöflinum því hann á möguleikann á að vera með öllum ofantöldum þessa tilteknu helgi.
Nú finnst mér að eftirlegukindurnar, þ.e. systkini mín og feðginin í Breiðholtinu, ættu að fara að láta í sér heyra. Nú og auðvitað þeir sem búa í Skagafirðinum góða hafi þeir möguleika á að sýna sín fríðu andlit.
Einnig langar mig að vita, þar sem að ég er alveg óstjórnlega forvitin, hvort að Kristín býður enn fram húsnæði sitt.
P.s. Ég er búin að fá út úr fyrra prófinu og náði því. Ekki glæsileg einkunn, en ekki fall.
<< Heim