19 mars 2007

Fellstúnið

Sæl öll
Nú erum við búin að selja Fellstúnið, en það góða er, að það helst innan fjölskyldu Sigurjóns því Helgi Rafn Viggósson keypti slotið. Og er ég ákaflega ánægð með það, því ég veit að þau hugsa vel um garðinn og ef ekki þau þá verður Rannveig örugglega með puttana þar.Getur verið að ég renni suður á föstudag eða laugardag til að njóta samvista við barnabörnin mín, þ.e.a.s. ef veður og færi verður gott.Ætla aðeins að sjá til. Vona að þið skemmtið ykkur vel um helgina og gangið hægt um gleðinnar dyr, og gerið ekkert sem ég myndi ekki gera. Líst vel á þá hugmynd að hittast í vor eða sumar og þá jafnvel ömmur, afar, börn og barnabörn.Hafið það sem best elskur. Dísamamma.

© Ísak Sigurjón, 2006 ⊥ HTML 4.01CSS