07 mars 2007

Eigum við að hittast?

Jæja þá eru prófin búin og ég er því laus úr þessu félagslega fangelsi mínu.

Hvernig væri nú að fara að plana smá stórfjölskyldu-hitting hér sunnan heiða? Mig langar alveg endilega að hitta alla svona áður en ég skelli mér (að öllum líkindum) til Tælands.

Hvaða tími hentar fólki helst? Bara svona þannig að það sé hægt að fara að hugsa um þetta mál. Ég verð reyndar eitthvað að vinna um helgar en get örugglega breytt vöktum þannig að ég komist austur fyrir fjall ef það verður upp á teningnum.

Nú er bara að vona að einhverjir séu að lesa þetta blogg ;)

© Ísak Sigurjón, 2006 ⊥ HTML 4.01CSS