06 janúar 2006

jólin eru rotuð

jæja jæja..

Gleðilegt nýtt ár allir og takk kærlega fyrir öll þau gömlu!!
Jólin voru alveg bara hreint ágæt og já takk kærlega fyrir mig, þið sem gáfuð mér eitthvað:)
ég komst að því að það er ágætt að fá ælupest fyrir jólin, ég komst nefnilega að því að ég hef aldrei fitnað á jólunum og ég held að ástæðan sé sú að ég léttist náttúrulegaa alltaf um fullt af kílóum í pestinni..:) en já svo komu áramótin og þau voru alveg hreint ágæt.. fyrir utan einhvern pirring sem er samt óflýjanlegur þegar svona margir koma saman;) við borðuðum alveg yndislegan mat og þetta kvöld var bara mjög gott.. Íþróttaálfurinn var pínu hræddur og lítill þegar kom að flugeldunum og sofnaði í einhvernveginn stellingu sem minnti á myndina Ópið..

nú jæja svo er ég nú byrjuð í skólanum líka og fékk alveg ágæta stundatöflu, er reyndar í sögu 203 klukkan 16 til 18:( en það reddast..

Jæja ég ætlaði nú bara að láta vita af mér..

Kv Signý Ósk

© Ísak Sigurjón, 2006 ⊥ HTML 4.01CSS