Örlítið kvabb
Ég er að reyna að gera mynda-albúm fyrir gömlu hjónin, þ.e. þessi elstu, Hlíf og Kibbus. Þetta er allt saman gott og blessað en þar sem að ég er lang mest með Báru kláru þá á ég líka flestar myndir af henni. Til þess að þetta verði nú allt saman sem allra best og ég þurfi ekki að skíra afraksturinn Báru-albúm væri ég mjög glöð ef þið senduð nokkrar vel valdar myndir til mín (sætar, fyndnar, grettnar o.s.frv) via e-mail. Mig langar ekki bara að fá myndir af börnunum (þó þau séu rosa sæt) heldur líka af 0., 1. og 2. kynslóð (að því gefnu að Amma og Afi séu 0. kynslóð).
Annars er nú lítið af mér að frétta. Skólinn er byrjaður aftur þannig að nú kemst þetta víst allt í fastar skorður. Signý er farin, Þorgeir kominn og mamma, pabbi og Ísak koma á morgun.
Til þess að koma ykkur af stað í myndunum skelli ég hérna inn einni síðan um jólin af mér og litla manninum sem ég má víst ekki gleyma ;).
Þá er víst ekki meira í bili nema bara gleðilegt ár og takk fyrir það gamla greyin mín.
<< Heim