Hvur andskotinn!!!!!!!!!!!!!!!!
Ja komið þið sælir kæru ættingjar nær og fjær!
Nei Sigurbjörg nei! Við ekki deyja hér og hananú!
Loksins þegar minn afturendi leyfir mér að sitja í þar til gerðum stól nokkra tíma á dag og ætla mér að vera í samskiptum við mína elskulegu ættingja sé ég mér til hrellingar að enginn er lengur að nota þetta blogg. Þetta gengur ekki, við skulum nú vera í sambandi svona, allavega hringi ég aldrei í neinn, þannig að mér finnst þetta er skárra en ekki neitt. MSN ið finnst mér reyndar fínn samskiptamáti, en það er önnur saga.
Nú, fréttir úr gulum kofa: Hér stækkar Katrín Sif og dafnar, hress og kát og YYYYYYNDISLEGA MJÚK. Maður verður að njóta þessarar ungbarnamjúku meðan hún varir. Nú, Sunna stækkar líka, er bráðum að ná mömmu sinni í stærð (enda þarf svosem ekki mikið til). Henni gengur vel í skólanum og utan hans er þéttskipuð dagskrá tómstunda: Sund, skátar, kór, freestyle dans og kannski fleira....
Engum finnst gaman að frétta af gömlu hrukkóttu fólki eins og okkur Arnari þannig að það er best að skrifa sem minnst, en við erum eins og við má búast!!! En við vorum að setja húsið á sölu og nú er að koma í okkur nettur taugatitringur vegna væntanlegra flutninga. Þetta virtist allt svo langt inni í framtíðinni, en er nú allt í einu að skella á eftir mjög svo stuttan tíma.
Jæja, ætla að hætta þessu röfli, en gaman væri að fá smá fréttir af ykkur hinum, sérstaklega Sigurbjörgu og Ísaki sem ég hitti svo asskoti sjaldan. Elskur gefið mér skýrslu!!!
Bless í bili, Sólmundur
ps. ÉG ER BRJÁLUÐ, BRJÁLUÐ ÚT AF FRÉTTUNUM AF ÁRÁS ÍSRAELSMANNA Á PALESTÍNU NÚNA NÝVERIÐ. KONUR OG BÖRN. SÁUÐ ÞIÐ FRÉTTIRNAR???
AF HVERJU GETUR MAÐUR EKKI GERT NEITT??

<< Heim