Að vera eða ekki vera? Það er spurningin.
Þarf að gefa út dánarvottorð á þessa síðu? Eða ætlar fólk að taka við sér og styðja hana með ráðum og dáðum til nýs lífs?
Eins og allir voru duglegir fyrst er ekkert að gerst hér núna. Vil ég benda lesendum, að því gefnu að þeir séu einhverjir, á að síðasta færsla á undan þessari er síðan 26. febrúar á þessu ári. Hvað er að frétta af öllum krílunum? Er Kristófer t.d. ennþá íþróttaálfur?
Ég er allavega á fullu í rannsóknarverkefninu mínu. Samt aldrei að vita nema maður láti sjá sig í firðinum fagra fljótlega!
<< Heim