Dagurinn í dag
Hæ,hæ. Dagurinn í dag var afskaplega notalegur.Vaknaði um kl.9:00, kúrði til ca.10:00, fór þá á fætur, borðaði morgunmat, fór svo út á plan með háþrýstidælu og dældi ca. 100 kg. af drullu út á götu ( hugsaði bara að gatan hlyti að verða þrifin einhverntíman, með svona bíl þið vitið ). Þegar þetta var búið fór ég auðvitað að hugsa um mat enda kl. orðin13:00, ákvað að hringja í Gunnu og Sigga og bjóða þeim í kaffi, þar sem ég átti Franska súkkulaðiköku;ógeðslegqa góð, og auðvitað þáðu þau boðið eftir svolitla umhugsun.Og þar sem ég, og reyndar Signý líka, var (vorum ????.) í pottinum þegar Gunna mín ákvað að taka mig fram yfir fermingarveislu á Akureyris, ákváðum við (Gunna altsvo) að hún tæki sundfötin sín með og þegar þau komu úðuðum við í okkur og svo fórum við í pottinn. Þetta varð að sjálfsögðu yndisleg stund og þetta á maður að gera mikið oftar, hóa 'i fólkið sitt og bara vera saman, skiptir ekki máli hvort við eigum köku eða hafragraut, það er bara svo gott að vera saman. Vona bara elskurnar mínar að þið munið það að fjölskyldan skiptir öllu máli, þó að við séum ekki á sama máli um alla hluti.Vona að ykkur gangi öllum vel í prófum og verkefnum og ritgerðum.Bið svo alveg sérstaklega að heilsa litlu krílunum,þ.e.a.s. Báru, Sunnevu og Kristófer, sem sagði við ömmu sína í gær: Æji, langar þig í mig, ég kem bráðum til þín . Ást , ást, ást að hætti Dísumömmu
Takk Sigurbjörg
Hæ hæ góðir landsmenn og konur, Elsku Sigurbjörg mín þú átt heiður skilið fyrir að lífga Höfðingjana við.Ég átti vægast sagt dásamlega páska, fór suður í Hveró á skírdag og kom heim á 2.í páskum MEÐ UNGANA, sem var gott. Í ferðinni hitti ég mín elskulegu börn og tengdabörn og borðaði afskaplega góðan mat hjá henni Kristínu minni. Að hafa börnin hjá mér í næstum því viku var ávið ca.12 sterkar vítamín sprautur og hef ég síðan rifið mig upp fyrir allar aldir og farið í ræktina, sem ég þarf virkilega á að halda, bæði vegna andlegs og líkamlegs ástands !!!.Hér á heimilinu er allt upprifið , búið að rífa gólfefni af gangi og svefnherbergi og svo var baðherbergið tekið algjörlega í nefið, nánast búið að flísaleggja í hólf og gólf. Og hver haldið þið að eigi nú heiðurinn af allri þessari vinnu annar en hann Sigurjón minn, hann er svo duglegur. Ég veit ekki ,hvort þið hafið frétt af væntanlegum breytingum á fjölskyldumunstri, ef þannig má orða það,Sigurjón ætlar í skóla í haust í Rvík við erum búin að kaupa íbúð þar (Torfufell 31 efstahæð til vinstri),Signý ætlar að vera hjá honum og fara í Borgarholtskóla, við ætlum að leigja Fellstún 1 og ég er búin að fá inni í húsinu hennar ömmu Birnu á Freyjugötunni, svo bráðum getið þið heimsótt mig aftur á Freyjugötuna !!!.Stutt í vinnuna og stutt í ræktina.Jæja nú ætla ég að fara að hofa á Hemma Gunn. já já ég veit það fíla hann ekki allir en ég geri það ÓKEY !!!.Ég vona að þið verðið dugleg að skrifa er það ekki bara ágæt pása frá próflestri !!! Bless elskur gleymum ekki hvort öðru ást ást Dísamamma
Að vera eða ekki vera? Það er spurningin.
Þarf að gefa út dánarvottorð á þessa síðu? Eða ætlar fólk að taka við sér og styðja hana með ráðum og dáðum til nýs lífs? Eins og allir voru duglegir fyrst er ekkert að gerst hér núna. Vil ég benda lesendum, að því gefnu að þeir séu einhverjir, á að síðasta færsla á undan þessari er síðan 26. febrúar á þessu ári. Hvað er að frétta af öllum krílunum? Er Kristófer t.d. ennþá íþróttaálfur? Ég er allavega á fullu í rannsóknarverkefninu mínu. Samt aldrei að vita nema maður láti sjá sig í firðinum fagra fljótlega!
|